Verðlisti
Image

Heyrnartæki

Við leggjum metnað okkar í að vera ávallt með það nýjasta úr heimi heyrnartækja á boðstólum. Úrvalið er í takt við þann fjölbreytta hóp viðskiptavina sem Heyrnarstöðin hefur þjónað um árabil. Komdu í heimsókn og fáðu aðstoð sérfræðings við val á heyrnartækjum fyrir þig.

Heyrnartæki koma í þremur verðflokkum:

1 )  Fyrir kyrrlátt umhverfi. Verð frá 33.000 kr. til 67.000 kr.
2 )  Fyrir breytilegt umhverfi. Verð frá 98.000 kr. til 129.000 kr.
3 )  Fyrir krefjandi umhverfi. Verð frá 163.000 kr. til 185.500 kr.

Tækin fást bæði með hefðbundnum og hlaðanlegum rafhlöðum.

Sjúkratryggingar Íslands greiða 60.000 kr. í hverju tæki og hafa þær verið dregnar frá verðinu.

Réttur neytenda
Sjúkratryggingar Íslands greiða 60.000 kr. í hverju heyrnartæki að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Stéttarfélög taka einnig þátt í kostnaði við heyrnartæki félagsmanna. Að auki er hægt að fá uppbót á lífeyri hjá Tryggingastofnun ef tekjur eru 261.772 kr. eða lægri á mánuði fyrir skatta og/eða ef eignir í peningum og verðbréfum eru undir 4 milljónum eða 8 milljónum hjá hjónum eða sambúðarfólki.

Fáðu heyrnartæki lánuð til prufu
Það getur verið stór ákvörðun að fá sér heyrnartæki. Þess vegna lánum við þér heyrnartæki í nokkra daga svo þú eigir auðveldara með að gera upp hug þinn. Pantaðu tíma í síma 568 7777 eða hér á síðunni og fáðu heyrnartæki lánuð til prufu.

Tímapantanir

Heyrnarstöðin | Kringlunni 4-12 |. Sími 568 7777 | heyra@heyra.is | Tímapantanir virka daga frá kl. 10-17

Search

+880 322448500 Beverly Boulevard Los Angeles