Merki um heyrnartap
Image

Merki um heyrnartap

Þú átt auðveldara með að greina heyrnartap hjá öðrum. Sá sem talar eða umhverfið sem þú ert í er gjarnan ástæða þess að þú heyrir illa. Ef þú skoðar málið í hreinskilni gæti það gefið þér mikilvægar upplýsingar.

Lestu þessar spurningar og sjáðu hvort heyrnarvandamál er til staðar.

1. Biður þú oft um að orð eða setningar séu endurteknar?
2. Spennist þú upp þegar þú átt í samræðum vegna óöryggis um að heyra rétt?
3. Hækkar þú meira í sjónvarpi og útvarpi en aðrir kæra sig um?
4. Finnst þér oft að fólk muldri eða tali lágt?
5. Veldur umhverfishávaði þér vandræðum þegar þú ert í margmenni?
6. Forðastu að taka þátt í samræðum eða mannfagnaði vegna þess að heyra ekki hvað sagt er?
7. Þarftu að spyrja aðra um efni fundar sem þú ert að koma af?
8. Heyrir þú ekki í síma eða dyrabjöllu?
9. Hefur það verið nefnt við þig að þú heyrir illa?

Ef þú hefur svarað einhverri af þessum spurningum játandi gætir þú verið með heyrnarvandamál.

Sendu okkur línu eða hringdu í síma 568 7777 og fáðu tíma í ókeypis heyrnarmælingu.

Tímapantanir

Heyrnarstöðin | Kringlunni 4-12 |. Sími 568 7777 | heyra@heyra.is | Tímapantanir virka daga frá kl. 10-17

Search

+880 322448500 Beverly Boulevard Los Angeles