Merki um heyrnartap
Þú átt auðveldara með að greina heyrnartap hjá öðrum. Sá sem talar eða umhverfið
sem þú ert í er gjarnan ástæða þess að þú heyrir illa. Ef þú skoðar málið í hreinskilni gæti
það gefið þér mikilvægar upplýsingar.
Lestu þessar spurningar og sjáðu hvort heyrnarvandamál er til staðar.
- Biður þú oft um að orð eða setningar séu endurteknar?
- Spennist þú upp þegar þú átt í samræðum vegna óöryggis um að heyra rétt?
- Hækkar þú meira í sjónvarpi og útvarpi en aðrir kæra sig um?
- Finnst þér oft að fólk muldri eða tali lágt?
- Veldur umhverfishávaði þér vandræðum þegar þú ert í margmenni?
- Forðastu að taka þátt í samræðum eða mannfagnaði vegna þess að heyra ekki hvað sagt er?
- Þarftu að spyrja aðra um efni fundar sem þú ert að koma af?
- Heyrir þú ekki í síma eða dyrabjöllu?
- Hefur það verið nefnt við þig að þú heyrir illa?
Ef þú hefur svarað einhverri af þessum spurningum játandi gætir þú verið með heyrnarvandamál.
Sendu okkur línu eða hringdu í síma 568 7777 og fáðu tíma í ókeypis heyrnarmælingu.